Félagið er samtök og er heiti þess SÞS
Aðsetur þess og varnarþing er í 105 Reykjavík, Soltún 5, en félagið starfar á landsvísu
Tilgangur félagsins er að:
Félagið stendur fyrir frístundastarfi fyrir fatlaða og tryggir þessa starfsemi með ýmsu hætti. SÞS skipuleggjur námskeið fyrir leikmenn, þjálfara og dómara boccia og verk þess styður við Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík. SÞS sameinar fólk og stofnanir til að styrkja samstarf ýmissa hópa fatlaðra íþróttamanna. SÞS er stofnandi stuðningsklúbbs og skipuleggur starfsemi þess. Þessi stuðningsklúbbur andstæðinga og áhugafólk að heimsækja Ísland og til að taka þátt í viðburðum SÞS.
SÞS skipuleggur göngur fyrir fatlað fólk og áhugafólk, og æfingabúðir, sérstaklega fyrir fyrir þá íþróttamenn sem nota hjólastól daglega. SÞS nýtur góðs af reynslu skipuleggjenda svipaðra starfsemi erlendis og hefur samstarf við bæði innlenda og erlenda aðila. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu félagsins.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með eftirfarandi:
Halda fundi, halda úti vefsíðu, bjóða upp á óformlegar samkomur til að styrkja að íþrótt fatlaðra og lífsgæðum.
Stofnfélagar eru
Stan Benedikt Jónsson, Vigdís Heiður Pálsdóttir og Anna Elín Hjálmarsdóttir
Fullgildir félagar eru allir þeir sem hafa tengsl fatlaðra sem og velunnarar sem þess óska og greiða félagsgjald.
Stjórnin skal skipuð 3 mönnum sem kosnir eru á aðalfundi til eins árs í senn. Formaður stjórnar skal kosinn sérstaklega og aðrir stjórnarmenn í einu lagi og skipta þeir með sér verkum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Einnig skulu kosnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og má ekki kjósa þá úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins. Leitast skal við að tryggja samfellu í starfi stjórnar með því að jafnan sitji hluti stjórnarmanna lengur en eitt ár í stjórn. Einungis félagsmenn eru kjörgengir til stjórnarkjörs. Daglega umsjón félagsins annast formaður eða framkvæmdastjóri sem er ráðinn af stjórn félagsins. Firmaritun félagsins er í höndum stjórnarformanns. Kostnaður/greiðslur vegna stjórnarfunda skulu bornar undir félagsfund til samþykktar.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í síðasta lagi fyrir lok desember ár hvert. Stjórn samtakanna skal boða til aðalfundar með minnst fjórtán daga fyrirvara, með auglýsingu í fréttabréfi, eða á annan tryggilegan hátt. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Aukafund skal boða með minnst sjö daga fyrirvara. Fundarefnis skal getið í fundarboði. Rétt til setu og atkvæðis á aðalfundi félagsins eiga allir félagsmenn sem hafa staðið skil á félagsgjaldi yfirstandandi félagsárs. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í atkvæðagreiðslu nema um breytingar á samþykktum þessum samanber 12. gr. Stjórn félagsins fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda.
Starfstímabil félagsins er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. Á aðalfundi skal leggja fram endurskoðaðan ársreikning félagsins fyrir síðasta starfsár ásamt ítarlegu yfirliti um fjáröflun og úthlutun fjár.
Dagskrá aðalfundar:
Heimilt er að breyta röð dagskrárliða á aðalfundi.
Stjórnin skal sjá til þess að haldnir séu reglulegir fundir fyrir félagsmenn a.m.k. á átta vikna fresti á tímabilinu september til maíloka. Stjórn stýrir félaginu í umboði aðalfundar í samræmi við samþykktir þessar. Stjórn kemur saman eigi sjaldnar en þrisvar á ári og oftar ef þurfa þykir. Halda skal gerðarbók þar sem bókuð eru öll mál sem tekin eru fyrir.
Árgjald félagsins er 1000isk. og skal það innheimt í janúar hvert ár.
Tekjur félagsins eru:
Tillögur að félagsslitum má bera upp á aðalfundi og telst hún samþykkt ef 2/3 hlutar félagsmanna á aðalfundi greiða henni atkvæði tvö ár í röð. Ef félaginu er slitið skulu eignir þess renna til samtakana Móðurmál.
Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundi enda fái breytingartillaga 2/3 hluta greiddra atkvæða. Með fundarboði til aðalfundar skal kynna tillögur að breytingum sem stjórn félagsins hyggst leggja fram. Aðrar tillögur skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Þar sem ákvæði þessarra samþykkta segja ekki til um hvernig skuli með farið, skal hlíta ákvæðum laga er við geta átt.
Þannig samþykkt á stofnfundi Félagsins SÞS, 18. januar 2016 og öðlast gildi þann sama dag.